Meginmál
Áhættumat Hjartarannsóknar fylgir alþjólega viðurkendum stöðlum og nýjustu þekkingu við greiningu og meðferð kransæðasjúkdóma á frumstigi.
24.4.2009
Bylgja Valtýsdóttir
Tveir nýir starfsmen hafa hafið störf hjá Hjartarannsókn. Þau eru Jón Magnús Kristjánsson bráðalæknir og Anna Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur sem mun leysa Bylgju Rún Stefánsdóttur af í fæðingarorlofi.
28.3.2006
Bylgja Valtýsdóttir
Hjartarannsókn býður fyrirækjum og hópum að sérfræðingar Hjartarannsóknar haldi fyrirlestur um eðli hjartasjúkdóma, áhættuþætti þeirra og greiningu. Á fyrirlestrinum er einnig fjallað um þá þætti sem hver og einn getur haft áhrif á í sínu lífi og skipta svo miklu máli í baráttunni við hjarta- og æðasjúkdóma, eins og mataræði, hreyfingu og lífsstíl.
Ekkert gjald er fyrir fyrirlesturinn. Lágmarksfjöldi er 40 manns.
Staðsetning
 |
|
Hjartarannsókn Holtasmára 1 201 Kópavogur
Nánar |
Um Hjartarannsókn ehf.
Hjartarannsókn er systurfyrirtæki Hjartaverndar og var stofnað árið 2005.
Fyrirtækið starfar náið með Hjartavernd og er staðsett í húsnæði Hjartaverndar í Kópavogi.
Starfsmenn Hjartarannsóknar eru læknar og hjúkrunarfræðingar með sérfræðiþekkingu og áralanga reynslu í greiningu og meðferð hjarta- og æðasjúkdóma.
Tilgangurinn með stofnun Hjartarannsóknar ehf. var fyrst og fremst að efla enn frekar forvarnir á sviði hjarta- og æðasjúkdóma.
Þannig er áhættumat Hjartarannsóknar byggt á þeirri þekkingu sem Hjartavernd hefur aflað með öflugu vísindastarfi og hefur að leiðarljósi nýjustu greiningartækni og alþjóðlega viðurkennda staðla.